|

Robert Smithson, Broken Circle/Spiral Hill. View of Spiral Hill, 1971.

Ívar Valgarðsson, Til spillis.

Úr safngeymslu Kjarvalsstaða.
|
|
ROBERT SMITHSON: Brotinn hringur-Spíralhæð
19. janúar - 14. apríl
Hafnarhús
Robert Smithson (1938–1973) er þekktastur sem einn af upphafsmönnum umhverfislistar (Land Art Movement). Á þessari sýningu er lögð áhersla á verkið Brotinn hringur/Spíralhæð sem Smithson gerði í Emmen í Hollandi árið 1971. Verkið er eina umhverfislistaverk Smithsons í Evrópu en hann lést í flugslysi tveimur árum síðar, aðeins 35 ára gamall.
>Sjá nánar
ÍVAR VALGARÐSSON - Til spillis
19. janúar - 14. apríl
Hafnarhús
Til Spillis eftir Ívar Valgarðsson (f. 1954) samanstendur af þremur veggmyndum af málningardropum sem hafa lekið á gólfið í A-sal í Hafnarhúsi, Listasafni Reykjavíkur, auk þriggja ljósmynda. Ívar beinir stafrænum smásjármyndavélum, sem ætlaðar eru til vísindarannsókna, að dropunum og varpar myndum í rauntíma á veggina, eins konar stækkuðum stafrænum málverkum af dropunum. Hann vekur þannig athygli á málningu sem hefur farið til spillis og færir sér í nyt gáleysi málarans, sem málaði veggi sýningarsalarins, með því að færa dropana aftur upp á veggina.
>Sjá nánar
FLÆÐI - Salon sýning af safneigninni
2. febrúar - 28. apríl 2013
Kjarvalsstaðir
Á þessari óvenjulegu sýningu gefst almenningi einstætt tækifæri til að sjá stóran hluta af safneign Listasafns Reykjavíkur. Sýningin mun taka stöðugum breytingum þá þrjá mánuði sem hún stendur yfir en verkum verður sífellt skipt út á sýningartímanum, jafnvel meðan gestir eru viðstaddir.
>Sjá nánar
|