News

Listasafn Islands

FALINN FJÁRSJÓÐUR - SÍÐASTA SÝNINGARHELGI!

Sunnudaginn 30. desember er síðasti sýningardagur sýningarinnar en af því tilefni verður Aðalsteinn Ingólfsson með leiðsögn um sýninguna þar sem sjónum er sérstaklega beint að Hvítasunnudegi.

Verkið Hvítasunnudagur er í eigu Landsbankans en það er sýnt með öðrum verkum sem bankinn keypti á 120. afmælisári sínu í fyrra. Má þar nefna kolateikningar eftir Kjarval, sem fundust upp á háalofti gamla Stýrimannaskólans í Reykjavík sumarið 1994.
Þá eru einnig verk eftir listamennina Finn Jónsson, Ásgrím Jónsson, Gunnlaug Scheving, Þorvald Skúlason, Nínu Tryggvadóttur, Zakarias Mikines, Braga Ásgeirsson, Kára Svensson, Elías B. Halldórsson, Ian Sharpe, Eggert Pétursson, Guðrúnu Einarsdóttur, Georg Guðna, Hlaðgerði Írisi Björnsdóttur, Jón B. Ransú, Sigurð Árna Sigurðsson og Sigtrygg Bjarna Baldvinsson.

Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur.

Printed of the web Reykjvik Art Museum, www.reykjvikartmuseum.is 25.14.2013