News
Fjölskyldufjör í Ásmundarsafni sunnudaginn 10. júní
Næstkomandi sunnudag býður Listasafn Reykjavíkur fjölskyldufólki að eiga skemmtilega og fræðandi stund í Ásmundarsafni frá kl. 13 - 16. Aðgangur er ókeypis. Dagskráin hefst klukkan 13 með fjölskylduleik og leiðsögn. Í garðinum verður farið í ratleik sem tengist styttum Ásmundar Sveinssonar og inni er hægt að spreyta sig á skemmtilegu verkefni í tengslum við sýninguna Lögun línunnar. Þar verða skoðuð ólík form og lögun í verkum og byggingu Ásmundar þar sem saman fara hvassar og ávalar línur. Klukkan 14 verður Yean Fee Quay sýningarstjóri sýningarinnar Lögun línunnar með leiðsögn. Á sýningunni er lögð áhersla á abstrakt verk eftir Ásmund, en listamaðurinn hóf að gera tilraunir með abstrakt verk um miðjan fimmta áratug síðustu aldar. Í Ásmundarsafni stendur einnig yfir sýningin Þjóðsögur Munnmælasögur þar sem sýndar eru myndskreyttar þjóðsögur úr munnlegri geymd. Hægt er að lesa sögurnar við myndirnar eða hlýða á þær í gegnum gjaldfrjálst gsm-númer. Garðurinn við Ásmundarsafn er alltaf opinn öllum og tilvalinn áninga- og skemmtistaður fyrir alla fjölskylduna.
Printed of the web Reykjvik Art Museum, www.reykjvikartmuseum.is 21.19.2013
|