News
NÚNA, ÞÁ OG SEINNA FYRIRLESTUR / GJÖRNINGUR DARRA LORENZEN Í HAFNARHÚSI NÆSTKOMANDI FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 20:00
Darri er meðal listamanna sem eiga verk á yfirstandandi sýningu Hafnarhússins, Tilraunamaraþoni, en þar býður hann áhorfandanum að ganga inn í rými sem lokast og ekki er hægt að yfirgefa að vild. Hann nýtir hljóð og ljós til að til að hafa áhrif á upplifun áhorfandans af rýminu. Annað verk Darra sem vakið hefur athygli hér á landi er verk sem hann vann í leikfimisal Austurbæjaraskóla á Menningarnótt 2007. Darri útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2000 og stundaði framhaldsnám í Hollandi og Þýskalandi. Darri hefur sýnt verk sín á alþjóðlegum sýningum og haldið einkasýningar bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Hann býr og starfar í Berlín. Hafnarhúsið er opið til kl. 22 á fimmtudögum. AÐGANGUR ÓKEYPIS LISTASAFN REYKJAVÍKUR ER SAFNIÐ ÞITT
Printed of the web Reykjvik Art Museum, www.reykjvikartmuseum.is 23.40.2013
|