News

Listasafn Islands

FJÖLBREYTT DAGSKRÁ Í ÖLLUM HÚSUM LISTASAFNS REYKJAVÍKUR UM HELGINA

SUNNUDAGUR 25. MAÍ
ÁSMUNDARSAFN
LEIRLISTASMIÐJA FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA KL. 13–16
Hugmyndin með listsmiðjunni í Ásmundarsafni á sunnudaginn er að fá börn og fullorðna til að vinna saman.  Byrjað verður á stuttri yfirferð um sýninguna en að því loknu er sest niður í vinnustofu með leir og viðeigandi verkfæri til að móta leirinn undir áhrifum frá Ásmundi Sveinssyni. Umsjón með listsmiðjunni hefur Sigríður Melrós Ólafsdóttir myndlistarmaður.


KJARVALSSTAÐIR

I HATE NATURE - LEIÐSÖGN KL. 15
Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt FÍLA annast leiðsögn og ræðir hugmyndafræðina að baki verkum Martha Schwartz en nú er í garði Kjarvalsstað gríðarstór innsetning eftir hana.

Martha Scwhartz er einn kunnasti, núlifandi landslagsarkitekt í heiminum. Innsetning hennar í garði Kjarvalsstaða skírskotar til upplifunar listamannsins á náttúrunni og umræðunni um nýtingu og verndun náttúrunnar. Martha hefur unnið fjölmörg verk í þéttbýli og fer jafnan ótroðnar slóðir í að kanna og nýta nýja möguleika sem landslagið hefur upp á að bjóða. Schwartz er myndlistarmaður og landslagsarkitekt sem í verkum sínum leitast jafnan við að gera báðum listformunum jafn hátt undir höfði. Félag íslenskra landslagsarkitekta stendur fyrir gerð sýningarinnar í tilefni af 30 ára afmæli félagsins.

HAFNARHÚS
ALMENN LEIÐSÖGN KL. 15:00
Almenn leiðsögn um sýningar Kjarvalsstaða og Hafnarhúss í fylgd fulltrúa frá fræðsludeild safnsins.


AÐGANGUR ÓKEYPIS
LISTASAFN REYKJAVÍKUR ER SAFNIÐ ÞITT



Printed of the web Reykjvik Art Museum, www.reykjvikartmuseum.is 24.28.2013