News
OPIN LISTSMIÐJA FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA OG LISTAMANNSSPJALL UM HELGINA
LÁTTU LJÓS ÞITT SKÍNA OG SPREYTTU ÞIG Í LEIRLIST
Sunnudaginn 30. mars kl. 13-16 verður opin leirlistsmiðja fyrir alla fjölskylduna á Ásmundarsafni. Hér eru verk Ásmundar Sveinssonar notuð sem innblástur í eigin þrívíða sköpun. Byrjað verður á stuttri yfirferð um sýninguna en að því loknu er sest niður í vinnustofu með leir og viðeigandi verkfæri til að móta leirinn undir áhrifum frá Ásmundi. Umsjón með listsmiðjunni hafa myndlistarkonurnar Sigríður Ólafsdóttir og Dagbjört Drífa Thorlacius. -Allir velkomnir og þátttaka er ókeypis.
HARALDUR JÓNSSON TEKUR ÞÁTT Í LEIÐSÖGN UM ÞÖGN
Myndlistarmaðurinn Haraldur Jónsson er meðal fjögurra myndlistarmanna sem eiga verk á sýningunni Þögn í Hafnarhúsinu. Hann tekur þátt í leiðsögn um sýninguna sunnudaginn 30. mars klukkan 15. Hann fjallar um eigið verk og hvernig það tengist viðfangsefni sýningarinnar.
AÐGANGUR ÓKEYPIS
LISTASAFN REYKJAVÍKUR ER SAFNIÐ ÞITT
Print Go back